Veldu þjónustu sem hentar þér
My Store
Auglýsing
Við sjáum um að gera bílinn tilbúinn fyrir sölu. Við komum til þín og tökum vandaðar myndir af bílnum, söfnum saman helstu upplýsingum og útbúum faglega auglýsingu. Þú sérð svo sjálf/ur um: -Að birta auglýsinguna -Samskipti við kaupendur -Að sýna bílinn -Samning og frágang sölu Hentar þeim sem vilja spara tíma við undirbúninginn en sjá sjálfur um söluna.
Share

My Store
Auglýsing+Sölustuðningur
Við sjáum um nánast allt. Þú klárar söluna. Við tökum faglegar myndir af bílnum, söfnum saman öllum helstu upplýsingum og útbúum vandaða auglýsingu sem lætur bílinn þinn skera sig úr. Við birtum bílinn á öflugum sölusíðum, sjáum um fyrirspurnir og samskipti við áhugasama kaupendur og hjálpum til við að finna rétta kaupandann. Við sjáum einnig um að sýna bílinn og taka á móti áhugasömum kaupendum, þannig að þú þarft ekki að standa í símtölum, skilaboðum eða sýningum. Við sjáum um: -Vandaðar myndir af bílnum -Faglega auglýsingu -Birtingu á öflugum sölusíðum -Að svara skilaboðum og fyrirspurnum -Að finna áhugasama kaupandur -Að sýna bílinn fyrir þína hönd -Samskipti við kaupanda í gegnum söluferlið Þú sérð aðeins um:Eigandaskipti fyrir sölu.
Share

Um Bílanet
Bilanet er íslensk þjónusta sem var stofnuð með eitt markmið í huga: að gera sölu á bíl einfaldari, þægilegri og faglegri.
Við vitum að það getur verið tímafrekt að selja bíl. Það þarf að taka góðar myndir, skrifa auglýsingu, svara skilaboðum og símtölum, hitta áhugasama kaupendur og sjá um ýmis atriði í kringum söluna.
Þess vegna bjóðum við upp á sveigjanlega þjónustu þar sem þú velur hversu mikið þú vilt að við sjáum um.
Hvort sem þú þarft aðeins faglegar myndir og góða auglýsingu eða vilt láta okkur sjá um stærstan hluta söluferlisins, þá aðlögum við þjónustuna að þínum þörfum.
Fagleg framsetning skiptir máli
Fyrsta sýn skiptir máli þegar bíll er auglýstur. Við leggjum áherslu á vandaðar myndir, skýrar upplýsingar og faglega framsetningu þannig að bíllinn þinn fái þá athygli sem hann á skilið.
Við komum til þín, skoðum bílinn, tökum myndir og hjálpum til við að koma honum sem best fyrir gagnvart mögulegum kaupendum.
Þú átt bílinn. Við sjáum um restina.